Búseti óskar eftir að ráða löggiltan meistara í pípulögnum til starfa við fjölbreytt verkefni tengd fasteignaumsjón, viðhaldi og endurbótum á fasteignum félagsins.
Leitað er að reynslumiklum, faglegum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur góða þekkingu á lagnavinnu, hita- og tæknikerfum fasteigna. Starfið felur í sér sjálfstæð verkefni en jafnframt náið samstarf við öflugt teymi eignaumsjónar Búseta.
Búseti leggur ríka áherslu á vönduð vinnubrögð og langtímahugsun í viðhaldi fasteignasafns félagsins, sem telur um 1.500 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2026. Nánari upplýsingar um starfið og umsókn má finna í starfsauglýsingu Búseta á Alfreð.
https://alfred.is/en/starf/fagmenntadur-pipari-oskast-til-starfa