Fimmtudaginn 18. nóvember nk. verður haldið námskeið fyrir formenn búsetufélaga.
Smelltu hér til að skrá þig á formannanámskeiðið.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um fundi og ákvarðanatöku á vegum búsetufélaga. Þá verður farið yfir atriði sem snúa að fjármálum, viðhaldi og framkvæmdum, húsreglum, öryggismálum ásamt samskiptum við íbúa.
Sérstök verður fjallað um verkaskiptinguna milli búsetufélaga og Búseta og hvernig heppilegt er að vinna með algeng mál sem upp kunna að koma.
Við hvetjum formenn til að mæta á námskeið, hvort sem þeir eru nýir í hlutverkinu eða með mikla reynslu af stjórnarstörfum.
Námskeiðið verður haldið í fundarsal Búseta (3. hæð) 18. nóvember nk. kl. 17:15 í Síðumúla 10, 108 Reykjavík.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Við vonumst til að sjá sem flesta.