Stjórn og stjórnarhættir

Markmið Búseta er að byggja, reka og viðhalda íbúðarhúsnæði til langs tíma í þágu félagsmanna

Góðir stjórnarhættir

Góðir stjórnarhættir leggja grunninn að ábyrgri stjórnun og ákvarðanatöku með ofangreint markmið að leiðarljósi. Stjórn og framkvæmdastjóri Búseta leggja áherslu á góða stjórnarhætti og meta reglulega stjórnarhætti sína með tilliti til viðurkenndra leiðbeininga þar um.

Starfsreglur stjórnar

Stjórnarháttayfirlýsing

Framkvæmdastjóri Búseta

Bjarni Þór Þórólfsson hóf störf sem framkvæmdastjóri Búseta árið 2017. Hann hefur á liðnum árum starfað sem stjórnandi á sviði fjármálamarkaða, hugbúnaðargeira og fasteignageira. Bjarni lauk M.Sc. gráðu frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og B.Sc. gráðu frá Ríkisháskólanum í Kaliforníu og hefur stundað kennslu á háskólastigi. Hann er í stjórn NBO sem eru samtök norrænna húsnæðisfélaga. Bjarni er viðurkenndur stjórnarmaður frá Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrirtækja við Háskóla Íslands og hefur lokið löggildingu sem leigumiðlari.

Stjórn

Ásbjörn Unnar Valsteinsson

Varamaður í stjórn

Ásbjörn lauk B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í tölvunarfræði í Danmörku. Hann hefur starfað við netumsjón og upplýsingaöryggi bæði í Danmörku og á Íslandi. Í Danmörku kynntist hann búseturéttarfélögum vel, bæði sem búseturéttarhafi og stjórnarmaður. Ásbjörn er búseturéttarhafi.

Erna Borgný Einarsdóttir

Stjórnarmaður

Erna starfar sem sérfræðingur á fjármálasviði Fastus og býr yfir víðtækri reynslu af fjármálum, rekstri og ráðgjöf. Hún er með diplómagráðu í fjármálum og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og er viðurkenndur bókari. Hún hefur starfað í ráðgjöf hjá hugbúnaðarfyrirtæki og hefur reynslu af fjármálum og rekstri sveitarfélaga. Erna er búseturéttarhafi.

Helga Egla Björnsdóttir

Stjórnarmaður

Helga er deildarstjóri innan tekjustýringar á sölu- og markaðssviði hjá Icelandair. Hún er með B.A. gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands og alþjóðlegt IATA/UFTAA próf. Helga er búseturéttarhafi.

Hildur Mósesdóttir

Varamaður í stjórn

Hildur starfar á fjármálasviði hugbúnaðar- og lækningatæknifyrirtækisins Nox Medical. Hún lauk rekstrar- og stjórnunarnámi frá Háskólanum á Akureyri og er viðurkenndur bókari. Hildur hefur átt sæti í aðalstjórn Íþróttafélagsins Fylkis og keppt fyrir hönd félagsins í blaki. Hildur er félagsmaður í Búseta.

Jón Ögmundsson

Stjórnarformaður

Jón er hæstaréttarlögmaður og meðeigandi Altus lögmanna slf. Hann er með próf í lögfræði frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Miami (UM). Jón er með lögmannsréttindi í Flórídaríki í Bandaríkjunum ásamt löggildingu sem fasteigna- fyrirtækja- og skipasali. Hann hefur mikla reynslu af lögmannsstörfum innanlands sem utan og málum tengdum fasteignum. Jón er félagsmaður í Búseta.

Karlotta Jóna Finnsdóttir

Stjórnarmaður

Karlotta starfar sem fjármálastjóri innflutningsfyrirtækisins Hegas. Hún býr yfir margra ára stjórnunarreynslu og er viðurkenndur bókari. Hún hefur átt sæti í ýmsum stjórnum og sinnt trúnaðarstörfum. Hún hefur m.a. átt sæti stjórn Íþróttafélags fatlaðra, Asparinnar – íþróttafélags, Golfklúbbs Oddfellowa og Búsetufélagsins að Árskógum 5-7. Karlotta er búseturéttarhafi.

Ragnar Sær Ragnarsson

Stjórnarmaður

Ragnar hefur á liðnum árum sinnt stjórnunarstörfum á vegum sveitarfélaga. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri hjá einni af leiðandi arkitektastofum landsins og komið að fasteignaþróunarverkefnum. Ragnar er með kennsluréttindi og hefur einnig lokið prófum í rekstri, viðskiptum og stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Þá hefur hann lokið námi í góðum stjórnarháttum fyrirtækja og námi sem viðurkenndur stjórnarmaður. Ragnar er búseturéttarhafi.