Viðburðir

Viðburðir fyrir árið 2026

Námskeið fyrir formenn Búsetufélaga

Hvenær: 22. október kl. 17:15

Hvar: Síðumúla 10, 108 Reykjavík - Gullfoss salur á 3. hæð

Skráðu þig með því að smella hér.

Á formannanámskeiðinu verður meðal annars fjallað um fundi og ákvarðanatökur, fjármál, viðhald og framkvæmdir, húsreglur, öryggismál og samskipti við íbúa.

Sérstök áhersla verður lögð á verkaskiptingu milli Búsetufélags og Búseta og hvernig best er að takast á við algeng og krefjandi mál sem koma upp í starfi formanna og stjórna.


Námskeið fyrir gjaldkera Búsetufélaga

Upplýsingar um næsta gjaldkeranámskeið kemur síðar.

Á gjaldkeranámskeiðinu förum við yfir það hvenær á að skipta kostnaði jafnt og hvenær hann á að vera hlutfallsskiptur milli íbúða.  

Einnig er farið yfir skjal sem við höfum útbúið til að auðvelda gjaldkerum alla áætlanagerð í fjármálum sem og að kynna hana á aðalfundum.

Við förum líka yfir ársreikningagerð og skil á þeim til skrifstofu Búseta. Kynnt verður „skapalón“ sem hægt er að vinna ársreikningana í.